top of page

15 fjöll á 15 dögum... í tilefni af 15 ára afmæli Toppfara !

Tue, May 31

|

#Toppfaraáskorun

Göngum á 15 fjöll á 15 dögum í tilefni af 15 ára afmælisári fjallgönguklúbbsins sem var stofnaður þann 15. maí 2007 á Esjunni.

Registration is Closed
See other events
15 fjöll á 15 dögum... í tilefni af 15 ára afmæli Toppfara !
15 fjöll á 15 dögum... í tilefni af 15 ára afmæli Toppfara !

Time & Location

May 31, 2022, 11:00 PM – 11:59 PM

#Toppfaraáskorun, Reykjavík, Iceland

About the Event

Hefst þri 17. maí og lýkur þri 31. maí.

Þátttökuskilyrði:

1. Melda þarf fjallalistann sinn inn á viðburðinn eða í tölvupósti til þjálfara í lok áskorunarinnar. Nauðsynlegt er að þar komi fram nafn á hverju fjalli og dagsetningar. Aðrar tölfræðiupplýsingar eru valkvæðar en vel þegnar.

Ein mynd skal fylgja með og ekki verra ef smá pistill fylgir með um hvernig upplifunin var að gera þetta. Engar sjálfumyndir eins og alltaf í okkar áskorunum NB. Tökum eftir fegurðinni í kringum okkur og myndum hana.

2. Leyfilegt að fara á sama fjallið oftar en einu sinni og fleiri fjöll / tinda í sömu ferð og á sama fjallið oftar en einu sinni í sömu ferð ef farið er niður að fjallsrótum aftur (vanalegur upphafsstaður). Engin ákveðin skilgreining er á hvað telst fjall, heldur gilda öll fjöll, fell og hlíðar sem við höfum hingað til talið í okkar göngum sem "tind".

3. Allir núverandi og fyrrverandi Toppfarar velkomnir að taka þátt í þessari áskorun. Dreginn út einn þátttakandi sem vinnur sér inn árgjald í klúbbnum sem viðkomandi má nýta fyrir sjálfan sig eða gefa öðrum.

Við ætlum í níu tinda göngu kringum Eyjadal Esjunnar laugardaginn 21. maí og þar er aldeilist hægt að ná sér í 9 stykki svo þetta er alveg yfirstíganlegt með smá útsjónarsemi.

Langtímaáætlunin er að gera þetta árlega með einum degi til viðbótar hvert ár... við erum búin að gera þetta síðan klúbburinn varð 10 ára árið 2017... svo árið 2027 náum við 20 fjöllum á 20 dögum... bara gaman og skemmtielg áskorun !

Sjá samantekt úr fyrri áskorunum í gegnum árin:

https://www.fjallgongur.is/allar-askoranir-toppfara-fra...

Sjá fb-viðburð hér:  (12) 15 fjöll á 15 dögum... í tilefni af 15 ára afmæli Toppfara ! | Facebook

Share This Event

bottom of page