Hekla hin fagra
Sat, Aug 19
|Hekla, 851, Iceland
Mögnuð ganga á drottningu sunnlenskra fjalla sem gefur stórkostlegt útsýni yfir Fjallabakið, hálendið og suðurlandið alla leið til sjávar. Eingöngu farið ef rólegt er yfir vöktun Veðurstofunnar á svæðinu fyrir brottför.
Dagsetning og tími
Aug 19, 2023, 8:00 AM – 5:00 PM
Hekla, 851, Iceland
Nánari upplýsingar
Uppfært 18. ágúst 2023 kl. 15:30:
Skráðir eru 12 manns; Aníta, Ása, Áslaug Birgisdóttir gestur, Bára, Elísa, Jaana, Jón Bragason, Kolbeinn, Óskar Ingvarsson gestur, Sigga Lár, Steinar R. og Örn.
Jeppar eingöngu:
1. Örn, Bára + Ása, Jón Bragason og Áslaug Birgisdóttir frá Dómadalsafleggjara.
2. Kolbeinn, Elísa + Aníta, Jaana og Steinar R., Aníta frá Reykjavík.
3. Sigga Lár + 1 laust pláss - frá Reykjavík.
4. Óskar Ingvarsson + laus 3-4 pláss frá Dómadalsafleggjara.
Raðið ykkur í bíla frá Össuri, Grjóthálsi 5 þeir sem koma frá Rvík og þeir sem þurfa jeppafar geta fengið hjá Erni og Óskari frá Dómadalsafleggjara.
Hittumst við Dómadalsafleggjara kl. 9:30 miðað við brottför frá Reykjavík kl. 08:00 á laugardagsmorgninum.
Hámark 20 manns og lágmark 8 manns.
Nýjustu tilkynningar:
*Breyting á tímasetningu ferðar í kl. 08:00 frá Össuri Grjóthálsi 5 og heimkoma um kl. 17:00+ þar sem gangan styttist v/jeppa.
*Breyting á leiðarvali þar sem við erum orðin 10 manns og 4 jeppar.
*Upplýsingar um öll Heklugos og annar frábær fróðleikur í Heklusetrinu Leirubakka: http://www.leirubakki.is/Default.asp?Page=257 Upplýsingar af vef Hálendishótelsins í Hrauneyjum: http://hrauneyjar.is/IS/Ahugaverdir-stadir/Hekla,-eldfjallid-vidfraega_231/default.aspx Frá veðurstofunni frá því í síðasta gosi árið 2000: http://hraun.vedur.is/ja/heklufrettir.html Veðurstofan varðandi viðbrögð við eldgosi utandyra: http://www.vedur.is/skjalftar-og-eldgos/frodleikur/eldgos_vidbrogd/ Sjá vefmyndavélina á Búrfelli af Heklu á veðurstofuvefnum: http://www.ruv.is/hekla. Sjá Hekluvöktun varðandi járðskjálfa og eldgosahættu: http://hraun.vedur.is/ja/hekluvoktun
*Frá því við gengum fyrst á Heklu með Toppfara árið 2007 og þá með Íslenskum fjallaleiðsögumönnum, var búist við Heklugosi hvað úr hverju þar sem hún átti að gjósa á tíu ára fresti. Árin á eftir 2009, 2011, 2014 og 2017 var okkur alltaf tíðrætt um áhættuna á eldgosi sem að sjálfsögðu er til staðar, ekki eingöngu á 10 ára fresti heldur er áhættan stöðug eins og á öðrum virku svæðum á landinu, Eyjafjallajökli, Öræfajökli, Fimmvörðuhálsi, Hengilssvæðinu, Reykjanesi og í fyrra bættist Öskjusvæðið við og nú í sumar Mýrdalsjökull og Torfajökulssvæðið.
Allt eru þetta mjög vinsæl göngusvæði og mikill fjöldi ferðast þar um þetta sumarið, m.a. stórir gönguhópar, svo það ríkir ákveðin hentisemi í þessu með hverjir vilja meina að hvar sé varasamt að ganga og hvenær. Nú er skilgreint óvissustig á tveimur vinsælum göngusvæðum, Öskjusvæðinu og Torfajökulssvæðinu, Reykjanesið hefur gosið þrisvar á 2,5 ári og jarðskjálftar og jafnvel brennisteinslykt hefur orðið vart á svæðum eins og þórsmörk o.fl. í sumar. Mjög gott símasamband er á Heklu sem á t. d. ekki við um nokkur ofangreind virk jarðhræringasvæði, flóttaleið keyrandi ofan af og frá Heklu er betri en á sumum ofangreindra svæða, Hekla er greiðfær leið þar sem auðvelt er að fara hratt niður ef á þarf að halda og hvergi er grjóthrunshætta eða álíka ef jarðskjálftar verða eins og er t.d. á Herðubreið o.fl. ,Hekla er ekki á skilgreindu óvissustigi núna eins og sum ofangreind svæði (Askja og Torfajökulssvæðið)... og svo framvegis... svo við mælum með að viðhafa samkvæmni í þessari umræðu ef menn eru á annað borð að gagnrýna göngur á Heklu eða um önnur ofangreind svæði.
Árið 2011 gekk með okkur maður frá Serbíu sem bjó á Íslandi um tíma og þegar honum var sagt það að við fengjum alltaf mikla gagnrýni fyrir að ganga á Heklu þar sem hún væri varasöm og sumir þyrðu alls ekki að ganga á fjallið, þá brást hann við með því að fara að hlæja og segja "Vá, hvað fólk getur verið sjálflægt, dettur því virkilega í hug að eldfjallið fari að gjósa um leið og það er þessa örfáu klukkutíma á fjallinu"... :-) En sem fyrr segir förum við eingöngu ef ekki er óvanaleg virkni í Heklu þann dag sem við göngum og við lítum svo á að landið okkar allt sé meira og minna ákveðin áhætta þar sem virkar eldstöðvar eru víða þar sem vinsæl útivistarsvæði eru og erfitt að sniðganga þau öll ef við ætlum að njóta íslenskrar náttúru en að sjálfsögðu virðum við sjónarmið þeirra sem vilja ekki ganga á Heklu né um önnur svæði þar sem mögulega gæti komið gos, það er vel skiljanlegt.
Verð:
Kr. 7.000 fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði hjón/par/vinir mæta.
Kr. 10.000 fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.
Kr. 13.000 fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.
Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:
Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is.
Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.
Skráning og skilmálar:
Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst.
Ferð er ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.
Veðurspár:
Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng:
Leiðsögn:
Þjálfarar.
Brottför:
Kl. 8:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.
Heimkoma:
Um kl. 17+ miðað við 2+ klst. akstur, 4 klst. göngu og græjun við bíla fyrir og eftir göngu.
Aksturslengd:
Um 2+ klst.
Sameinumst í bíla og ökum í samfloti að fjallsrótum. Skiptumst á að skaffa bíl og fá far og deilum bensínkostnaði - viðmiðið er 1.500 kr. fyrir hvern hálftíma í akstri sem deilist niður á alla í bílnum (bílstjóri undanskilinn bensínkostnaði ef farþegar eru fleiri en einn). Endurskoðum reglulega þessa reglu frá FÍB og slípum hana til ef mönnum finnst þetta ekki rétt viðmiðunarupphæð.
Akstursleiðarlýsing:
Ekið um Suðurlandsveg að Landsvegamótum þar sem beygt er til vinstri og ekinn þjóðvegur 26 þar til beygt er til hægri Dómadalsleið inn á hálendi um veg F225 og þaðan beygt síðar til hægri inn á malarslóða að Skjólkvíum eða lengra ef bílfæri leyfir og lagt af stað gangandi.
Hæð:
Um 1.500 m.
Hækkun:
Um 600 m miðað við 950 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.
Göngulengd:
Um 8 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .
Göngutími:
Um 4 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.
Gönguleiðin:
Gengið stikaða leið frá öxlinni í lausum vikri og hrauni á greiðfærri leið en ofar þarf að brölta svolítið gegnum nýjasta hraunið frá árinu 200 sem er frekar hvasst og úfið og seinfarið. Efst eru báðir tindar ávalir og greiðfærir og útsýni stórkostlegt.
Erfiðleikastig:
Um 2 af 6 eða fært öllum í ágætis gönguformi fyrir frekar stutta og greiðfæra leið en þó með svolitlu brölti í gegnum nýja hraunið á miðri leið.
Búnaður:
Vatns- og vindheldar buxur og jakki, hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlingar, ullarföt innst, góðir gönguskór með ökklastuðningi, kjarngott nesti, 1-2 L af vökva. Höfuðljós eru nauðsynlegur búnaður allra yfir vetrartímann og að vori/hausti eftir birtuskilyrðum og einnig keðjubroddar, ísexi og jöklabroddar en fer þó eftir snjóalögum.
Tryggingar:
Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.
Sjá fb-viðburð hér: (3) Hekla hin fagra | Facebook