
Hvað ætli maður sé lengi að fara rösklega upp og niður Mosfell ? - mælum það !
Fri, Feb 28
|#Fjallatími
Seinni áskorun Toppfara árið 2025 er að mæla tímann okkar upp og niður á tólf fjöllum á tólf mánuðum eða færri eftir vali og taka þannig púlsinn á sér reglulega og bera saman milli mánaða og ára og helst nýta þessa mælingu til að bæta þolið. Mosfell er annað fjallið af tólf ! #Fjallatími


Dagsetning og tími
Feb 28, 2025, 5:00 PM – 6:00 PM
#Fjallatími
Nánari upplýsingar
Hin áskorun ársins 2025.. er að mæla tímann okkar upp, niður og alls á tólf æfingafjöll á tólf mánuðum eða þeim æfingafjöllum sem við viljum og skráum hann niður... til að bæta þolið og taka púlsinn á okkur milli mánaða og ára.
Það gefur okkur aðhald og hvatningu en keppum fyrst og fremst við okkur sjálf:
Leiðbeiningar um leiðina á Mosfell:
*Farið frá Mosfellskirkju stíginn upp til norðurs beinustu leið á heiðina þar sem tekin er vinstri beygja og gengið þá í vestur upp á tindinn.
*Þessi leið er stikuð (eins og fleiri á felllinu reyndar) og best að fylgja þeim en leiðin er fjölfarin og yfirleitt troðin og því sjáanleg.
*Þetta er algengasta leiðin upp og niður Mosfellið. Ekki er farið um suðurslóðann og bröttu leiðina sem er næst algengust.