top of page

Sjö tindar til Hafnarfjarðar frá Heiðmörk í Ásvallalaug

Sat, Dec 02

|

Hafnarfjörður

Mögnuð leið þar sem gengið er á sjö fjöll, fell og hlíðar á leið úr Heiðmörk til Ásvallalaugar um hraun, mosa, gras og göngustíga upp á Búrfellsgjá, Húsfell, Valahnúka, Helgafell í Hf., Stórhöfða, Vatnshlíð og loks Ásfjall.

Registration is Closed
See other events
Sjö tindar til Hafnarfjarðar frá Heiðmörk í Ásvallalaug
Sjö tindar til Hafnarfjarðar frá Heiðmörk í Ásvallalaug

Time & Location

Dec 02, 2023, 8:00 AM – 4:00 PM

Hafnarfjörður, Ásvellir 2, 220 Hafnarfjörður, Iceland

Guests

About the Event

Uppfært 1. desember kl. 20: 

Skráðir eru 8 manns: Agnar, Aníta, Björg, Brynjar, Kolbeinn, Sighvatur, Sjöfn Kr.,  og Örn þjálfari.

Nýjustu tilkynningar:

*Fólksbílafært.

*Ferja þarf bíla milli Ásvallalaugar og bílastæðið við Búrfellsgjá í Heiðmörk (tekur 12 mín að keyra). 

*Keðjubroddar nauðsynlegur búnaður allra ef kominn er snjór í fjöllin. 

*Sjá ferðasöguna frá 2020 þar sem við gengum í rigningu en nutum samt í botn þessarar leiðar og hétum okkur því að endurtaka hana næst í góðu veðri: 

Tindferð 195 Sjö tindar til Hafn (toppfarar.is)

Verð:

Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef báðir aðilar sem deila æfingagjöldum mæta. 

Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 12.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng. 

Leiðsögn:

Örn.

Brottför:

Kl. 08:00 á slaginu frá Ásvallalaug í Hafnarfirði.

Heimkoma:

Um kl. 16:00.

Aksturslengd:

Um 12 mín akstur milli Ásvallalaugar og Heiðmerkur og svo mislangt eftir því hvaðan menn koma úr borginni.

Fólksbílafært.

Akstursleiðarlýsing:

Keyrt innanbæjar að Ásvallalaug í Hafnarfirði og svo að bílastæðinu við Búrfellsgjá í Heiðmörk. 

Hæð:

Um 358 á Helgafell í Hf en lægra á hinum fellunum.

Hækkun:

Um 995 m miðað við 115 m upphafshæð og 24 m endahæð.

Göngulengd:

Um 22 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngutími:

Um 7+ klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Gengið á stígum að stærstum hluta og þrætt upp og niður sjö fjöll, fell og hlíðar í ólíku landslagi og útsýni alveg magnaða leið sem fangar vel fegurðina í nálægð borgarinnar. 

Erfiðleikastig:

Um 2 af 6 eða fært öllum í sæmilegu gönguformi fyrir frekar langa en greiðfæra dagsgöngu á stíg að stórum hluta með ágætis samansafnaðri hækkun. 

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

FB-viðburður: 

Share This Event

bottom of page