Sveifluháls frá Miðdegishnúki að Hatti og Hettu á Hringadróttinsslóðum
Sat, Nov 04
|Kleifarvatn, 241, Iceland
Mjög svipmikil og töfrandi flott leið um Sveifluhálsinn þar sem farið verður frá suðurenda Kleifarvatns upp á Miðdegishnúk, Skarðatind, Ketilstind, Bleiktind, Kleifartind, Arnartind, Seltúnstind, Hverafjall, Hatt og loks Hettu þar sem snúið er niður að Arnarvatni og dalirnir gengnir til baka.
Time & Location
Nov 04, 2023, 9:00 AM – 4:00 PM
Kleifarvatn, 241, Iceland
About the Event
Uppfært 3. nóvember 2023 kl. 15:00:
Skráðir eru 8 manns: Aníta, Fanney, Óskar, Sighvatur, Sjöfn Kr., Steinar R., Þórkatla og Örn þjálfari.
Nýjustu tilkynningar:
*Fólksbílafært.
*Keðjubroddar, höfuðljós og allir vetrargöngubúnaður nauðsynlegur búnaður allra, óháð veðurspá.
*Þetta er leiðin frá árinu 2013, ferðasagan hér: Tindferð 89 - Miðdegishnúkur - A (toppfarar.is)
Verð:
Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði hjón/par/vinir mæta.
Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.
Kr. 12.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.
Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:
Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is.
Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.
Skráning og skilmálar:
Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst.
Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun, þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.
Veðurspár:
Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng: Yr - Kleifarvatn - Long term forecast
Leiðsögn:
Örn þjálfari.
Brottför:
Kl. 9:00 á slaginu frá Ásvallalaug Hafnarfirði.
Heimkoma:
Um kl. 16:00
Aksturslengd:
Um 20 mín. Fólksbílafært.
Akstursleiðarlýsing:
Keyrt frá Ásvallalaug Hafnarfirði um Krýsuvíkurveg að Kleifarvatni og meðfram því vestan megin með Sveifluhálsinn á hægri hönd þar til komið er að suðurenda Kleifarvatns þar sem bílum er lagt á smávegis malarstæði við veginn.
Hæð:
Um 413 m.
Hækkun:
Um 850 m miðað við 153 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.
Göngulengd:
Um 12 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .
Göngutími:
Um 6 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.
Gönguleiðin:
Létt og frekar seinfarið klöngur í móbergsklettum, mosa og möl upp og niður alls tíu tinda sem allir eru greiðfærir og mjög svipmiklir og endað við magnaða hverastæðið ofan Seltúns áður en snúið er til baka niður að Arnarvatni og dalirnir milli Sveifluhálss og Móhálsatinda gengnir til baka. Rifjum með þessu upp leiðina sem við fórum þann 3. febrúar árið 2013 þar sem mjög slæmt veður skall á um miðjan dag og hafði örlagaríkar afleiðingar í för með sér á Esjunni og sló allan fjallgönguheiminn óhug.
Erfiðleikastig:
Um 2 af 6 eða fært öllum í sæmilegu gönguformi fyrir frekar stutta dagsgöngu með heilmiklu brölti upp og niður á svipmiklum en saklausum fjallstindum Sveifluhálssins.
Búnaður:
Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka, hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi og góðum sóla, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til, ekki er þörf á jöklabroddum í þessari ferð.
Tryggingar:
Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.
Sjá fb-viðburð hér: