
Það hafa fáir mælt tímann sinn á Reykjaborg - komum henni á æfingafjallakortið !
Mon, Mar 31
|#Fjallatími
Seinni áskorun Toppfara árið 2025 er að mæla tímann okkar upp og niður á tólf fjöllum á tólf mánuðum eða færri eftir vali og taka þannig púlsinn á sér reglulega og bera saman milli mánaða og ára og helst nýta þessa mælingu til að bæta þolið. Reykjaborg er þriðja fjallið af tólf ! #Fjallatími


Dagsetning og tími
Mar 31, 2025, 5:00 PM – 7:00 PM
#Fjallatími
Nánari upplýsingar
Seinni áskorun ársins 2025.. er að mæla tímann okkar upp, niður og alls á tólf æfingafjöll á tólf mánuðum eða þeim æfingafjöllum sem við viljum og skráum hann niður... til að bæta þolið og taka púlsinn á okkur milli mánaða og ára.
Það gefur okkur aðhald og hvatningu en keppum fyrst og fremst við okkur sjálf:
Leiðbeiningar um leiðina á Reykjaborg:
*Farið frá bílastæðinu við Hafravatnsrétt norðan megin við Hafravatn á stígnum frá byrjun til enda.
*Slóðinn fer meðfram Borgarvatni ofarlega á leiðinni.
*Þessi leið er stikuð og slóðuð. Gæta þarf þess að fara ekki óvart niður stíginn að Hafrahlíð (sem sé snúa til baka sömu leið NB).