Tindferð nr. 283 þann 7. október 2023.
Örn bauð upp á magnaða göngu á Skessuhorn í byrjun október í logni og sól með létta snjóföl í fjöllunum þar sem óvíst var hvort fært yrði í efsta hlutanum út frá snjóalögum en mun minni snjór var í fjallinu þegar á hólminn var komið. Mæting var frábær, veðrið lék við hópinn og útsýnið var einstakt með skýra snjólínu í Skarðsheiðinni svo fjallasýnin var með eindæmum enda gleymdu menn sér í myndatökum af hinu stóra samhengi þessa glæsilega fjallasalar sem og af hinu smáa þar sem veturinn er smám saman að læsa klónum sínum í gróður og berg...
Þetta er fjórða ganga klúbbsins á þetta fjall þar sem sú fyrsta endaði reyndar ekki á tindinum heldur í alvarlegu slysi, önnur ferðin var á þriðjudagskveldi fram á nótt í rigningu og þoku með engu skyggni, sú þriðja var eins og þessi í léttum snjó í efri hlíðum með sólina á lofti og fjallasalinn allt um kring.
Alls 17,8 km á 7:41 klst. upp í 973 m með alls 1.042 m hækkun úr 80 m upphafshæð.
Gps-slóðin frá 2019 með Álfsteinsá: Wikiloc | Skessuhorn upp með Álfsteinsá 120621 Trail
(ekki lengur farið frá bænum Horni eins og árið 2010).
Myndband af ferðinni 2019: Skessuhorn í snjóföl, klaka, sól og útsýni 12. júní 2021 - YouTube
Ljósmyndir Arnar, þjálfara hér í tímaröð:
Mættir voru 10 manns:
Siggi, Leiknir, Þórkatla. Sjöfn Kr., Tinna, Linda, Sighvatur, Jaana og Áslaug Birgisdóttir en Örn tók mynd og Batman og Tumi stóðu sig með prýði í þessari alvöru fjallgöngu :-)
Dj. snillingar !
Algerir snillingar að ná þessu fjalli í október... takk elskurnar fyrir mergjaðan dag og einstaklega góðan anda og félagsskap :-)
Comments