Æfing nr. 812 þriðjudaginn 30. júlí 2024.
Þorleifur bauð upp á óhefðbundna leið á Vífilsfellið meðan þjálfarar tóku vikusumarfrí í lok júlí og byrjun ágúst.
Frá Þorleifi á fb:
"ÆVINTÝRAGANGA UM UNDRAVERÖLD VÍFILSFELLSINS.
Gengum mjög skemmtilega og krefjandi leið, sem engin okkar hafði farið áður. Ljúf og góð ganga og hrikalega góðir göngufélagar. Fórum 8km og hækkun var 678m á 4 tímum. Takk kærlega fyrir þetta fjör."
Kærar þakkir elsku Þorleifur fyrir þessa snilld !
Comments