top of page
Writer's pictureBára Agnes Ketilsdóttir

Útigönguhöfði frá Álfakirkju um Réttarfell, (Vestrihatt) og Hvannárgil #Þórsmerkurfjöllin

Tindferð nr. 268 laugardaginn 3. júní 2023.


Í fyrra fórum við fyrstu formlegu Þórsmerkurfjallasöfnunarferðina á Rjúpnafell og um Tindfjallahringinn sem var ægifögur og sat lengi í minningunni... við vorum svolítið úrkula vonar um næstu ferð þar sem veðurtíðin er búin að vera sérlega erfið þetta vorið og sumarið... en þjálfarar fóru könnunarleiðangur um leið dagsins þetta árið... ár tvö í Þórsmörk... um Útigönguhöfða og félaga og Hvannárgil til baka í sól og blíðu... og voru hreinlega agndofa yfir fegurðinni á þessari leið...


Við settum því færslu inn á fb-hóp Toppfara um að hver sem vettlingi gætu valdið ættu að koma í þessa göngu en vorum eingöngu 16 manns sem var mikil synd því þetta reyndist ein fegursta gangan frá upphafi...


Landslag Þórsmerkur er ævintýri líkast... og þó keyrt sé hér inn eftir á hverju ári verðum maður alltaf orðlaus í hvert sinn...


Árnar voru í stakasta lagi inn eftir... en þjálfarar höfðu farið þetta einbíla á fimmtudeginum og eingöngu verið smeyk við Steinholtsána sem slapp samt vel...


Veðurblíðan var dásamleg þegar við lögðum bílunum við Álfakirkju... og lögðum af stað kl. 9:45... eftir brottför kl. 07 um morguninn...


Álfakirkja hér... stórbrotið landslag frá fyrsta skrefi...


Brött brekka strax í byrjun eftir smá kafla undir kirkjunni til að byrja með...


Lögð af stað um Réttarfellið... sem kom verulega á óvart... bratt og heilmikið klöngur og brölt... alvöru fjallganga vestan megin en austan megin er stígur og tröppur sem búið er að gera en flestir ganga á Réttarfellið þeim megin, frá Básum en fyrir áhugasama er þess virði að taka vestari leiðina með og fara þá hálfhring um fellið í leiðinni...


Mjög skemmtileg leið...


Fækkuðum fötum í hitanum og logninu...


Útsýnið strax magnað... Valahnúkur sem gnæfir yfir Húsadal hér hægra megin...


Langidalur þarna í kvosinni blómlegu... og Tindfjallajökull í skýjunum fjær...


Nærmynd... mjög fallegur staður fyrir skálann sem FÍ rekur með myndarskap... sjá göngubrúna yfir Krossá... tær snilld að hafa hana fyrir þá sem treysta sér ekki til að keyra yfir Krossá...


Upp gil og meðfram klettum...


... ekki dauður punktur á þessari leið...


Gleði og þakklæti... fyrir að vera á þessum stað á þessari stundu... rysjótt veðurtíð ríkti áfram út allan júnímánuð og við vorum einstaklega lánsöm að ná þessari göngu á áætluðum degi... þetta var sumarið sem það var þess virði að grípa góðu dagana þegar þeir gáfust...


Um Réttarfellið er stígur sem við fylgdum...


... um krókaleiðir sem eru magnaðar...


Hvannárgilið að koma í ljós... klettastapar Eyjafjallajökuls yfirgnæfandi...


Litið til baka... sjá akstursleiðina okkar...


Sjá slóðann framundan hér í hliðarhalla...


Mikið spjallað og spáð...


Forystuhundurinn Batman rataði... eftir könnunarleiðangurinn tveimur dögum áður...


Frábær stemning þennan dag...


Logn og hlýtt... við þáðum það með þökkum...


Hvannárgilið að koma í ljós... hér upp komum við í lok dagsins...


Mögnuð leið hér um Réttarfellið...


Heilmikið klöngur en vel fært öllum sem eru á annað borð að ganga á fjöll...


Geggjuð leið !


Þetta var veisla fyrir klifurketti klúbbsins...


Þessi kafli var skemmtilegastur á Réttarfellinu...


... þar sem keðjan var... ekkert mál en tafsamt þó við værum bara 16 manns...


Doddi nennti ekki að bíða of fór neðan við þessa leið... en hann mælti ekki með henni :-)


Höfðingjar klúbbsins... þau sem hafa náð 70 ára aldrei... og jafnvel 80 árum eins og Magga Páls... tóku þetta í nefið...


Fyrstu menn komnir niður...


Gott að nota keðjuna, halla sér aftur og finna syllur fyrir skóna...


Flestir í klúbbnum ólofthræddir en þó nokkrir glíma við óöryggi í svona bratta og þá er gott að hafa félagana með til að blása sér byr í brjóst...


Mjög flott leið !


Langidalur...


Hvannárgil...


Gat í gegnum bergið... Linda er svo falleg fyrirsæta...


Leiðin þegar litið var til baka...


Áfram hélt klöngrið...


... upp á hæsta tind Réttarfells...


Við gáfum okkar góðan tíma í þessari göngu og tókum ógrynni af myndum...


Rjúpnafellið og Tindfjöll hér í fjarska vinstra megin...


Litið til baka...


Einhyrningur og Hattfell... bak við Tindfjöllin...


Hattfellið... við gengum á það í fyrra ásamt Stórusúlu í einni flottustu göngunni í sögunni... og ætlum aftur á það sem föstudagsfjall 21. júlí ef veður leyfir...



Einhyrningur... sem við gengum á haustið 2021 í sömu ferð og gengið var á Illusúlu... sem var líka einstök ferð... Illasúla og Einhyrningur í þokudulúð, vetrarsól, regnbogum og hálendistöfrum á heimsmælikvarða ! (fjallgongur.is)


Valahnúkur... við eigum hann eftir... hann verður fljótlega genginn... engin spurning að bæta honum við safnið #Þórsmerkurfjöllin


Rjúpnafellið svo fallegt í sólinni... það var magnað fjall að ganga á... og sambærilegt þennan dag var Útigönguhöfði sem við horfðum á af Rjúpnafelli og ákváðum þá að ganga á Útigönguhöfða ári síðar... sem nú var að rætast...


Hátindar... þeir eru komnir á listann 2025 eða 2026...


Hinn tindurinn sem er líka flottur og minnir á önnur fjöll á þessu svæði, mjór og stórskorinn hægra megin... sést ekki vel á þessari mynd... spurning hviort þetta sé Rjúpnafell við Stakkholtsgjá miðað við korti... ekki það sama og við krossárjökulinn heldur hérna megin... skoðum þetta betur og göngum þessa leið síðar...


Aðalfjall dagsins... Útigönguhöfði... magnaður og löngu kominn tími á að bæta honum í fjallasafnið okkar... loksins...


Niður af Réttarfellinu skemmtilega og létta leið... Réttarfellið mældist 514 m hátt...


Fjalllendið á milli Réttarfells og Útigönguhöfða er merkt "Vestrihattur" eða "Vesturhattur" á sumum kortum en á kortinu yfir Goðaland og Þórsmörk þá eru eingöngu örnefnið "Votupallar" þarna á milli og þá þeir sem snúa til norðurs að Þórsmörk...


Útigönguöfði annarlega glæsilegur héðan...


Tröppurnar niður af Réttarfellinu þar sem flestir fara upp frá Básum... og nú sáum við niður til Bása... magnað að fara þessa leið og horfa niður til Langadals og svo niður til Bása...


Hvílík leið...


Rjúpnafellið og Tindfjöllin... þarna stóðum við og gengum í fyrra... og ef við höldum áfram á hverju ári fyrstu helgina í júní eða svo... þá erum við smám saman að ná að ganga á öllu þessu svæði og safna tindum, giljum, hryggjum og ám...


Básaskarð heitir þetta hér á góðu korti af svæðinu sjálfu sem er útgefið af Kynnisferðum, FÍ og Útivist en það vantar ártalið á það...


Ekki fallegasti nestisstaðurinn... en við vorum svöng... og settumst hér eftir fyrstu fjallgöngu dagsins og heilmikið klöngur...


Dásamlegt í logni og hita... því veðrið var erfitt þessar vikurnar og átti eftir að vera það áfram... eingöngu fimm dögum áður voru menn í vandræðum hér á þessu svæði með snjó yfir öllu svo kvennahópur Fjallafélagsins ofl. breyttu sínu leiðarvali... ótrúleg veðurskipti á fimm dögum þar sem við vorum hér í blíðskaparveðri og engan snjó að sjá...


Magga Páls átti 83ja ára afmæli þennan dag og kom með pönnukökur... en á þessum tímapunkti vissi enginn að hún ætti afmæli... mögnuð kona !


Þetta var fyrsti nestistími af þremur þennan dag...


Jæja... Útigönguhöfði... hér komum við...


Votupallar...


Stundum þyngri yfir í fjöllunum... og sólargeislarnir hurfu... og það varð þungbúið eða þokukennt... en svo létti aftur til og sólargeislarnir sindruðust yfir allt... við sluppum vel og fengum betra veður en áhorfðist skv. veðurspánni... eins og þegar þjálfarar fóru könnunarleiðangurinn... alla þessa daga var spáð skýjuðu veðri og smávegis rigningu... en veðrið var mun betra en spáin og þegar þjálfarar litu til fjalla og inn að Þórsmörk frá bústaðnum sínum þessar síðustu vikur í maí og fyrstu vikuna í júní... þá var veðrið yfirleitt betra en spáin sagði til um... svo stundum eigum við bara að lát aslag standa og fara... og vona það besta... nú og bara taka því ef spáin rætist eða er verri en spáin... og muna þá að vera þakklátur þegar góða veðrið kemur... það er æfing í jákvæðni að búa á Íslandi...


Réttarfellið og Vestrihattur frá fjallsrótum Útigönguhöfða...


Þjálfarar þorðu varla að segja hópnum það... en þarna blasti leiðin okkar við til baka síðar um daginn... utan í þessum hlíðum... sjá slóðann ofan við klettabergið og fossinn... sannarlega víðsjárverð leið að sjá... en í stakasta lagi þegar maður gengur hana... góður stígur og hvergi tæpistigur þó auðvitað þurfi að fara varlega á köflum...


Hvannárgilið... beið okkar eftir Útigönguhöfðann...


Lagt af stað upp Útigönguhöfða með Vestrihatt, Votupalla og Réttarfellið í baksýn... spuyrning hvort höfðinn sem er merktur "Hattur" ofan við Bása sé þessi "Vestrihattur" og þannig sé hann ranglega merktur hér á milli... við viljum endilega fá leiðréttingar eða réttar upplýsingar svo þessi ferðasaga sé rétt...


Hátindar í sólargeislum...


Örn fann hjarta á steini... og setti hann í vasann...


... og var þar með sagður vera með hjartað í buxunum á þessari mögnuðu leið dagsins... sem líklega var misskilið af einhverjum... en við nenntum ekki að leiðrétta það... :-)


Frábær hópur... bestu félagar í heimi... elja, jákvæðni, ósérhlífni, áræðni... ekkert væl né úrtölur né hindranahugsanagangur... bara gleði og gaman... þá gerast ævintýrin...


Þegar við lögðum af stað upp Útigönguhöfðann þyngdi yfir...


... og svo létti til...


Síbreytilegt veður og við vissum aldrei í hvora áttina það ætlaði... allan daginn...


Úr fjarlægð lítur þetta fjall út fyrir að vera illkleift og varasamt... en leiðin er mun betri en hún lítur út héðan...


Mjög skemmtileg leið...


Landslagið í Þórsmörk... já, eða í Goðalandi í raun er svo fjölbreytt... æj, við freistumst til að nota nafnið Þórsmörk yfir allt þetta svæði í stað þess að vera sífellt að nota skiptinguna um að Goðaland sé svæðið sunnan Krossár og Þórsmörk norðan hennar... sem er hið eina rétta nefnilega... slík nafngift skipti án efa máli hér áður fyrr þegar var t.d. verið að smala svæðið og áin réði öllu... en sama þörf er ekki til staðar nú... svo í raun, þegar keyrt er hingað upp eftir í Bása og gist þar... þá í raun má segja að viðkomandi hafi ekki farið í þórsmörk... nema hann hafi farið yfir Krossá í Langadal og Húsasal... en í almennri umræðu er yfirleitt talað um allt svæðið sem Þórsmörk og við freistumst til að gera það líka... vonandi án þess að einhverjum líki illa við það...


Brölt og klöngur var verkefni dagsins...


Saklaust til að byrja með...


Réttarfellið og Hattur neðar og svo Básar og Bólhöfuð hægra megin... en á okkar gps-korti er þessi aukaklettur þarna Bólfell... og Eystrihattur hægra megin... svo nú þurfum við að ganga á þessa kletta og tala við skálaverði og sjá hvernig þetta er merkt hjá þeim...


Bólfell eða Bólhöfuð eða Hattur og Eystrihattur... þetta er svolítið ruglandi en við komumst að þessu á endanum... hvaða kort er réttast ?


Sjá stikaða slóðann hér upp...


Æj... komin þoka einmitt þegar við göngum á aðalútsýnisstað dagsins... við vorum svekkt... en þurftum þess ekki...


Hér er komin þoka á Rjúpnafellið... og orðið lágskýjaðra... Kattarhryggir á Fimmvörðuhálsleiðinni þarna niðri hinum megin við gilið...


KLettastríturnar utan í Útigönguhöfða...


Við nutum útsýnisins frá skarðinu... úr því við vorum að ganga upp þokuna... en...

Skyndilega fór sólin að skína...


Sigríður Lísabet og Linda skutust upp á alla aukatinda og hikuðu ekki við að klöngrast...


Orðið bjartara strax hér...


Snillingar þessar tvær !


Hey... tökum eina covid-hópmynd :-)


Við bókstaflega ýttum þokunni burt...


Hattfellið og Laufafellið í sólinni uppi á hálendinu... nær eru Tindfjöll og Rjúpnafell.. svo krossáin... og loks næst eru Kattarhryggir á síðasta hluta Fimmvörðuhálsleiðarinnar... það var áhrifamikið að sjá þá leið útbreidda frá okkar sjónarhorni...


Hattfellið nær...


Jebb... sólin var mætt...


Geggjað... við vorum í góðum málum hér upp...


Sólin skein og þá er allt svo létt og yfirstíganlegt...


Leiðin greið þó seinfarin væri í bratta og brölti...


Litið til baka...


Sjá fjallsásinn sem við vorum búin að ganga eftir frá Álfakirkju... með Hvannárgilið öðru megin og ósa Krossár hinum megin...

Leiðin er mun betri en leit út fyrir neðar...


Litið til baka...


Kaðlar hér en vel hægt að sleppa þeim og klöngrast upp... líklega nýtast þeir vel í mjög þurrum jarðvegi á leið niður...


Mergjuð leið !


Örn kominn upp...


Uppi á Útigönguhöfða gávum við okkur góðan tíma því útsýnið var stórkostlegt og veðrið dásamlegt... riddarapeysur þrjár hér...


Doddi var að vígja sína nýju peysu... mjög falleg og alveg í stíl við fjöllin í Mýrdalsjökli og Eyjafjallajökli...


Prjónapeysuganga... mjög fallegar peysur !


Merkurtungnahaus hér... og svo Eyjafjallajökull... Hvannárgilið þarna niðri að bíða eftir okkur... storbrotið landslag og mjög skorskorið... hér er ekki fært hvar sem er... við vorum lánsöm að einhver var búinn að slóða og stika leið dagsins þó við þyrftum að tengja tvær leiðir saman og fara óhefðbundinn hring um svæðið...


Menn tóku myndir af sér hér og þar...


Hátindar, Hvannárgil ytra og Réttarfell og svo Vestrihattur ef rétt nafngift og Votupallar... Valahnúkur svo hægra megin og Krossá að renna niður eftir...


Básar og Langidalur saman á mynd... sjá skógi vaxið svæðið kringum Bása...


Guðmundur Jón var alveg í stíl við liti dagsins...


Þau sem ekki voru með prjónapeysturnar með sér... Inga Guðrún, Öyvind, Silla, Magga Páls og Örn...


Og hér með meira landslagi... hin myndir samt betri...


Þjálfarar voru látnir físlast aðeins... :-)


Birtan var mögnuð... við vorum svo heppin að fá sólina hér uppi... og allt þetta útsýni... vá, hvað þetta var stórkostlegt !


Útigönguhöfði mældisst 811 m hár... og við lögðum af stað niður honum megin... austan megin... sem búið va rað segja okkur að væri stórgrýtt og mjög krefjandi... en reyndist fínastavleið þegar þjálfarar könnuðu hana tveimur dögum áður...


Skýin aftur farin af neðri hluta Eyjafjallajökuls...


Þessi brekka var ekkert mál...


Nú kom sér vel að verfa sífellt að klöngrast ótroðnar slóðir á þriðjudögum... því í svona landslagi reynir á það... það er svo létt að ganga slóða og stikaðar leiðir...

Þessi leið er reyndar stikuð... en við fórum fljótlega út af henni þar sem hún er áfram í grjótinu en það er mun betra að fara mosann beint niður...


Sjá Heiðarhorniðn og Morinsheiðina sem er hluti af Fimmvörðuhálsleiðinni... slóðinn sést vel.. komnir tveir af Heiðarhorninu því miður...


Ennþá á slóðanum hér...


Beint niður hér um mosann eða lækjarfarveginn...


Gott að vera búin með bæði fjöllin... nú var bara að tengja þessa leið við Hvannárgil og taka nestispásu þar...


Þarna fórum við niður... grjótskriðuna hægra megin...


Stelpumynd dagsins... Bára, Fanney, Sigríður Lísabet, Njóla, Aníta, Sjöfn Kr., Linda, Silla, Jaana, Magga Páls., Katrín Kj. og Inga Guðrún...


Strákar dagsins... Guðmundur Jón, Örn, Öyvind og Doddi með Batman eitt andartak :-)


Nú var að fara niður nafnlaust mjög fallegt gil í átt að Hvannárgili...


Auðvitað fundu klifurkettirnir klett til að klöngrast upp á... Örn og Doddi að leika sér...


Linda og Sigríður Lísabet eru ekkert skárri en strákarnir... og fóru hér upp líka...


Geggjaðar !


Svona á að gera þetta... njóta þess að ögra sér... af því maður getur það alveg...


Örn lagaði mosann sem gaf sig eftir fjóra þarna upp...


Nestispásan varð óvænt hér... og reyndist dásamlegur staður að staldra við á og borða...


... með Útigönguhöfða yfir okkur... sigur í hjartanu...


Fjallaskvísurnar inga Guðrún, Njóla og Sigríður Lísabet...


Mjög brött leið hér niður en í góðu grasi og mosa... einstaklega sérstakur staður að fara um... þessi kafli er ekki stikaður né slóðaður af því allilr fara hinum megin af Útigönguhöfða... og þeir sem fara um Hvannárgilið koma ofan af Morinsheiðinni sem var vinstra megin við okkur... en þjáflarar voru búnir að skoða þetta og fara um þetta gil í könnunarleiðangrinum...


Gilið virðist jafnvel ófært þarna niðri... en fínasta leið er þar um með brölti í grjóti og sandi í læknum...


Merkurtungnahaus farinn að njóta sín vel hér...


Stórskemmtileg leið...


Heilmikill ís undir sandinum og grjótinu...


Við þurftum að fara varlega...


og ekki stíga hvar sem var...


Sumarið er að sigra veturinn... en spurning hvort þessi snjór fær einhvern tíma að bráðna einangraður undir svörtum, svölum sandinum...


Á milli bjargsins hér...


Við nutum hvers skrefs...


Ævintýri... var orð dagsins... já, og storbrotin fegurð... og... við áttum varla til orð yfir þennan dag...


Þrætt meðfram læknum niður eftir...


Komin í Hvannárgil... hér birtist slóðinn sem menn taka frá Morinsheiði...


Grjótið gult í Hvannánni.... hún átti eftir að stækka sífellt með uppsöfnuðum ám sem runnu úr giljum Eyjafjallajökuls alla leiðina niður eftir nokkra kílómetra leið...


Morinsheiði þarna fyrir ofan...


Hér með aftur komin á slóða sem nær út allt Hvannárgilið alla leið í Bása eða um Réttarfellið í Álfakirkju aftur... og við tókum þann síðarnefnda...


Hvannárgilið er glæsileg náttúrusmíð sem kom verulega á óvart...


Miklir litir... form... og kynjamyndir um allt...


... og stígurinn utan í hlíðinni yfirleitt frekar hátt uppi og vel fær allan tímann... þó stundum þyrfti aðeins að vanda sig...


Stundum var leiðin víðsjárverð þegar hún var séð í stærra samhengi...


Kettanös hér sem við stóðumst ekki mátið að ganga út á...


Allir út á hér fyrir hópmynd...


... en landslagið var svo stórt að við hurfum bara inn í það...


Rétt stærðarhlutföll... fyrri mynd tekin í fjarlinsu... gott að sjá hvern ig þær blekkja svolítið...

Magnaður staður !


Tröllin í þessu gljúfri voru um allt... þessi var ansi áberandi norðan megin...


Tröllið leyfði okkur að ganga yfir nefið sitt... ef við lofuðum að renna ekki fram af nefbroddinum...


Hvílík leið !


Lækjarsprænur rennandi niður alls staðar...


Klettastríturnar í Útigönguhöfða...


Snjórinn undir sandinum...


Mjög góður stígur og nóg af plássi...


Litið til baka...


Út á aðra nös og séð niður Hvannárgilið... litirnir...


... og tröllin um allt... lúrandi og gætandi gilsins....


Heilu andlitin...


Djúpir grænir litir...


Fossinn í slóðanum okkar stuttu áður...


Litið til baka...


Hellarnir efst...


Nær hér...


Áfram út eftir...


Heimur tröllanna kvaddur...


Fossarnir...


Stutt áning hér sem við sáum eftir að hafa ekki lengri... því hér skein sólin og var virkilega hlýtt...


Litið til baka...


Annar foss okkar megin...


Krókar og kimar á slóðinni...


Dásamlegt veður á þessum kafla...


Klettarnir ofan okkar...


Svo fallegt...


Áfram gakk...


Út eftir aftur... fegurðin var sláandi...


Litið til baka...

Sólargeislarnir náðu niður í gilið...


Tæpistigur þó við finndum ekkert fyrir því...


Komin að beygjunni neðan við uppgönguleiðin á Útigönguhöfða... farið að sjást í Réttarfellið...


Mjög skemmtilegur kafli hér...


Niður ytri hluta gilsins...


Fínn stígur þí afstaðan sé sláandi með gilið neðan við...


Mögnuð leið hreint út sagt !


Smá hópmynd hér...


Gilið út að áraurum Krossár...


Litið til baka...


Við vorum agndofa og svo smá í þessu landslagi...


Besta mynd dagsins... höfðinginn Guðmundur Jón alveg í stíl við landslagið...


Létt leiðin inn á hálsinn aftur...


Nú gátum við andað léttar... þeir sem á annað borð höfðu áhyggjur af þessum stígum í gljúfrinu... í bili...


Flottur foss hér...


Ótrúlega fjölbreytt leið allan tímann...


Réttarfellið efst vinstra megin...


Kynjamyndirnar héldu áfram að setja mikinn svip á gljúfrið...


Sjá stíginn okkar utan í brekkunni að baki Sillu...


Nú vorum við komin á meginlandið aftur...


Farin að sjá niður í Bása aftur...


Tindfjöllin...


Stígurinn okkar þarna ofan við klettana og rétt ofan við fossinn...


Útigönghöfði farinn að sjást...


Vestrihattur hér ef marka má gps-kort þjálfara... ekki víst að það sé rétt...


Upp aðeins aftur í átt að Réttarfelli...


Tindfjöll og Réttarfell...


Áfram var leiðin falleg þó við værum ekki í gljúfrinu í bili...


Básaskarð ? ... beygt hér til vinstri ofan í Hvannárgilið aftur í stað þess að halda upp á Réttarfellið...


Básar...


Útigönguhöfði...


Mjög flottur klettahöfði hér sem rís niður að gljúfrinu...


Margir ganga þennan stutta hring niður í gljúfrið og utan um Réttarfellið og til baka í Bása...


Þessi stutti kafli sem var eftir af Hvannárgilinu var mjög fallegur...


... áfram utan í hlíðunum en nú er gilið grunnt og vel fært...


Mergjuð leið !


Litið til baka...


Hrikaleikur landslagsins hélt áfram þó gljúfrið væri að renna út í sandinn hér...


Áfram sama blíðskaparveðrið... við vorum sérlega lánsöm því júní mánuður varð erfiður í veðri á þessum landshluta og svo í öllum landshlutum þegar leið á mánuðinn...


Smá skafl þarna lengst inni í þrönga gilinu...


Slóðinn mjög fínn hér...


Hópurinn þéttur...

Litið upp eftir gljúfrinu sem smám saman dýpkar og þrengist ofar...


Skiltin... við vorum á leið að Álfakirkju...


Slóðinn nær hér nánast niður í sandinn...


Þriðji nestisstaðurinn...


... neðan við magnaða klettana í Réttarfelli...


Svo fallegur gróður í klettunum... hvílík náttúrusmíð þarna... í smæðinni og stærðinni...


Yndisstund í þriðja skiptið í göngunni...


Silla, Magga Páls og Sjöfn Kr...


Inga Guðrún, Fanney, Sigríður Lísabet og Öyvind...


Katrín og Guðmundur... peysurnar hennar Katrínar eru listaverk út af fyrir sig...


Njóla og Doddi...


Yndislegt...


Jæja... smá kafli eftir í bílana...


Hér fara margir niður í sandinn og vaða ána niður eftir... þetta er grýttara og vatnsmeira en það lítur út fyrir úr fjarlægð...


Okkar leið lá hins vegar upp þessa brekku hér...


Litið til baka... Útigönguhöfði við miðja mynd aftastur...


Slóðinn er stikaður og þetta er fínasta leið...


... gegnum ilmandi birkið...


Hópmynd ferðarinnar tekin í miðri brekkunni... til að fanga landslag dagsins...


Guðmundur Jón, Katrín Kj., Öyvind, Sjöfn Kr., Fanney, Jaana, Sigríður Lísbet, Magga Páls, Inga Guðrún, Batman, Aníta, Njóla, Doddi, Linda, Silla og Örn en Bára tók mynd...


Við tókum þetta bara á spjallinu og gleðinni... svona brekkur eiga náttúrulega ekkert með að vera í lokin á krefjandi göngudegi... en þessi leið var eitthvað annað en venjulega og við samþykktum allt á svona degi...


Litið til baka ofar...


Sjá stíginn hér...


Komin upp á eina öxlina á Réttarfellinu...


Hér tók við mjög flottur kafli í hliðarhalla með magnað útsýni niður áraurana...


Hvannáin... áður en hún sameinast svo Krossánni neðar... bílvegurnn okkar þarna á miðjum sandinum...


Valahnúkur...


Jebb... ævintýrið var nefnilega ekki búið...


Sjá stíginn og fremstu menn örsmáa þarna niðri...


Mergjuð leið svo sannarlega !


Litið til baka...


Neðar komum við inn á stíginn okkar frá því um morguninn...


Komin á hann hér...


Síðasti kaflinn niður Álfakirkjuna sjálfa... Langidalur handan við Krossáraurana...


Síðustu skrefin ekki síðri en þau efri og innri...


... alla leið að bílunum...


Ekki einn dauður punktur á þessari leið... við vorum alsæl og í óendanlega þakklár fyrir þennan einstaklega fallega dag á hálendinu...


Alls 11,2 km á 7:46 klst. upp í 811 m hæð hæst með alls 965 m hækkun úr 228 m upphafshæð... geggjaður dagur !


Það mátti skála fyrir svona degi... engin spurning... fyrsta helgin í júní... og mergjuð gönguleið að baki !


Fjallahundurinn Batman var þreyttur... eins og við... ekki löng vegalengd... en flókin leið og mikið klöngur og brölt upp og niður og í hliðarhalla og stórgrýti á köflum...


Aksturinn til baka gekk vel... meira í ánum eins og við var að búast... Útigönguhöfði vinkaði bless... hér með förum við upp í Þórsmörk með þessa tinda hér fyrir miðju myndar og minningarnar hellast yfir mann... "sjáið tindinn... þarna fór ég"...


Guðmundur Jón að skella sér niður í ána... jeppaferðirnar gefa ferðum okkar meira virði og sterkari upplifun... vonandi náum við allavega fjórum en helst sex eða átta mergjuðum gönguferðum upp á hálendið áður en beturin tekur aftur við... jafnvel fleiri ef veður og áhugi leyfir...


Kyngimögnuð ferð... eins og svo margar aðrar á hálendi Íslands í gegnum árin... næsta sumar verða það tindfjöllin sem við ætlum að ganga á... eða fjöllin við Krossárjökul... sjáum til...



142 views0 comments

Comments


bottom of page